HönnunarMars 2023 fer fram dagana 3. – 7. maí!
Að venju mun hátíðin breiða úr sér um Reykjavík og nágrenni með fjölbreyttum sýningum og viðburðum sem endurspegla grósku og nýsköpun hönnunarsamfélagsins.
HönnunarMars er ein af borgarhátíðum Reykjavíkur og hefur farið fram árlega frá árinu 2009 þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast hönnun og arkitektúr þvert á fögin.
Um HönnunarMars
HönnunarMars er hönnunarhátíð þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hátíðin er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.
Hátíðin er skipulögð af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og hefur farið fram árlega síðan árið 2009. Hún er eitt helsta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs innanlands sem og á alþjóðlegum vettvangi.
Mörg hundruð viðburðir, sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar eru ár hvert, skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arkitektum, fyrirtækjum og stofnunum en þátttakendur eru um 400 talsins á hverju ári auk þess sem þátttaka erlendra gesta eykst með hverju árinu.
HönnunarMars er ein af fáum hönnunarhátíðum í heiminum þar sem ólíkar fagreinar hönnunar og arkitektúrs koma saman, allt frá fatahönnun til vöruhönnunar, arkitektúrs, grafískrar hönnunar, textílhönnunar, leirlistar, þjónustuhönnunar, stafræn hönnunar svo dæmi séu nefnd.
Sjáumst á HönnunarMars!