Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í hjarta Reykjavíkur þar sem gestir fá tækifæri til að fræðast um undur vísindanna og töfra orkunnar. Í Elliðaárstöð verður boðið upp á leiðsögn í nýrri sýningu í Heimili veitna þar sem hönnunarteymið Terta tekur á móti gestum og segir frá hönnun sýningarinnar og orkunni sem leynist innan veggja og undir gólfum.
Í Gestastofu Elliðaárstöðvar verður kynnt nýtt fræðsluefni og mikilvægi hönnunar í námsefnisgerð dregin fram. Fjölskyldur fá tækifæri til að takast á við hönnunaráskorun í skemmtilegri sköpunarsmiðju sem tengist vatni. Á útisvæði Elliðaárstöðvar verður boðið upp á þátttökusmiðju þar sem gestir fá að upplifa vísindi og eðli náttúruaflanna í gegnum sirkuslistir.
Á HönnunarMars mun Elliðaárstöð bjóða upp á fjölskylduviðburð þar sem leyndardómar veitnanna verða afhjúpaðir og gestir kynnast lífæðum samfélagsins og þeim lífsgæðum sem þær veita okkur. Boðið verður upp á leiðsögn kl.13:00 í nýuppgerðu Stöðvarstjórahúsi Elliðaárstöðvar sem mun fá nafnið Heimili veitna. Hönnunarteymið Terta mun leiða gesti um mismunandi herbergi heimilisins og segja frá hönnunarferlinu og orkunni sem leynist innan veggja og undir gólfum.
Stöðvarstjórahúsið eða Heimili veitna var byggt 1921 sama ár og rafstöðin og var íbúðarhús fyrir rafstöðvarstjóra. Fyrsti stöðvarstjóri Elliðaárstöðvar, Ágúst Guðmundsson og Sigríður Pálsdóttir kona hans, voru ásamt tveimur öðrum fjölskyldum fyrstu íbúar hússins. Á þessum tíma var Elliðaárdalurinn sveit og nauðsynlegt að þeir sem störfuðu í Elliðaárstöð hefðu búsetu í nágrenninu. Í staðinn fyrir að hýsa starfsfólk Elliðaárstöðvar mun húsið nú hýsa fjölbreytta starfsemi þar sem áhersla verður lögð á fræðslu og miðlun vísinda.
Nýsköpunarsmiðja // kl:14:00
Í Gestastofu Elliðaárstöðvar verður áhersla lögð á skapandi fræðslu. Kl. 14:00 mun Margrét Hugadóttir vísindamiðlari Elliðaárstöðvar leiða nýsköpunarsmiðju fyrir börn og fjölskyldur. Þátttakendum er boðið að taka þátt í hönnunaráskorun sem tengist vatni. Þar reynir á sköpunarkraftinn, lausnaleit og vísindalæsi. Á neðri hæð Gestastofunnar verða nýir STRAUMAR Elliðaárstöðvar í fræðslu kynntir. Mikilvægi hönnunar í námsefnisgerð er dregin fram í sjónarljósið.
Leiðarljós Elliðaárstöðvar í fræðslu er STRAUMUR, betur þekkt sem STREAM education, en slík nálgun samþættir vísindi (e. science), tæknigreinar (e. technology), skemmtun (e. recreation), verkfræði (e. engineering), listir (e. arts) og stærðfræði (e. mathematics). Áhersla er lögð á samvinnu, lausnaleit, hönnunarhugsun og nýsköpun í fjölbreyttum verkefnum.
MEGAWHAT!? // 15:00
Á útisvæði Elliðárstöðvar mun sirkuslistafélagið Hringleikur bjóða gestum upp á vísinda-sirkussmiðju MEGAWHAT!? Smiðjan er þróuð í samstarfi sirkuslistafólks og vísindafólks OR. Þar fá börn og fullorðnir að leika og skapa með sérstökum sirkusáhöldum undir handleiðslu sirkuslistafólks, með það að markmiði að draga fram tengsl sköpunar í sirkuslistum við lögmál náttúrunnar.
Útivera í Elliðaárstöð // 13:00 – 16:00
Milli 13:00-16:00 er gestum boðið til útiveru í hinu fagra umhverfi Elliðaárstöðvar. Rafstöðin verður opin gestum og gangandi, „pop-up“ kaffihús verður á svæðinu, hægt verður að njóta fallegrar hönnunar og náttúru dalsins eða slakað á í hengirúmum í skrúðgarðinum og hlustað á náttúruhljóð Elliðaárdals. Ef veður leyfir verður vatnsleikjagarðurinn einnig opinn þar sem börn jafnt sem fullorðnir geta buslað saman.
Gamla rafstöðin í Elliðaárdal, Elliðaárstöð, var byggð árið 1921 og lýsti á sínum tíma leiðina til framtíðar þegar hafið var að virkja Elliðaár til að framleiða raforku. Framsýni fyrri tíma og ósýnileg virkni veitukerfanna er innblástur Elliðaárstöðvar en hinn nýi áfangastaður ber nafn gömlu rafstöðvarinnar. Í stað þess að virkja rafmagn sem aðrar nútímavirkjanir sjá nú um í dag verður lögð áhersla á að virkja fólk, hugvit og nýsköpun og fræða gesti um undur vísindanna og töfra orkunnar.
Sýningastaður
Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur, 110 Reykjavík
Skoða á korti
Þátttakendur
- Elliðaárstöð
- Terta