Að baki hvers þjóðþekkts verks Kristínar liggja ógrynni af skissum, tilraunum og pælingum, sem ekki hefur verið safnað saman til sýningar fyrr en nú. Hér má sjá kunnuleg og áður óséð verk, sem samanlagt umbreyttu ungri myndlistarkonu í einn helsta brautryðjanda landsins á sviði grafískrar hönnunar.
Fáir hér á landi hafa skilað af sér jafn mörgum listaverkum, sem tekið er sem sjálfgefnum, og hönnuðurinn Kristín Þorkelsdóttir. Verk hennar hafa verið hvað mest áberandi við hinar hversdagslegustu aðstæður, svo sem inni í ísskápum landsmanna, ofan í töskum þeirra eða við hefðbundið borðhald. Þó má einnig finna verk Kristínar á jafn óaðgengilegum stöðum og í læstum öryggishirslum Seðlabanka Íslands. Enda er Kristín bæði hönnuður fjölmargra umbúða um matvæli og höfundur núgildandi peningaseðlaraðar, sem hún vann að ásamt hönnuðinum Stephen Fairbairn. Þá hefur Kristín hannað urmul auglýsinga, bækur og ýmis þjóðþekkt merki, sem mörg hafa verið í notkun í yfir fimm áratugi.
Kristín fæddist í austurbæ Reykjavíkur árið 1936. Sem barn og unglingur stefndi hún á að verða myndlistarmaður. Örlögin urðu þó sú að hún fór strax við útskrift úr Handíða- og myndlistarskólanum árið 1956 að vinna fyrir sér sem grafískur hönnuður. Þá felldu hún og eiginmaður hennar, Hörður Rafn Daníelsson, hugi saman á táningsaldri og varð þeim snemma barna auðið. Í kjölfarið velti Kristín fyrir sér hvort hún gæti fengist við sköpun og orðið sér úti um lifibrauð á krefjandi tímum. „Hönnun“ varð því fljótlega að samheiti yfir brauðstrit og listræna tjáningu, en örlögin höguðu því einnig þannig að hönnunarvinna Kristínar umbreyttist að lokum í eina stærstu auglýsingastofu landsins – AUK hf. (1967–1994).
Sýningarstjórar: Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Bryndís Björgvinsdóttir