Verslunin EPAL sýnir úrval af áhugaverðri hönnun eftir fjölbreyttan hóp íslenskra hönnuða sem hafa náð góðum árangri á sínu sviði bæði hérlendis og sumir einnig á erlendri grundu.
Epal tekur þátt í Hönnunarmars þrettánda árið í röð með vandaðri sýningu á íslenskri hönnun.
Epal hefur haft að leiðarljósi frá stofnun árið 1975 að auka skilning og virðingu fyrir hönnun á Íslandi með því að velja hönnun og gæðavörur sem skara fram úr. Epal hefur alla tíð stutt íslenska hönnuði og lagt sig fram um að hjálpa þeim við að koma verkum sínum á framfæri og í framleiðslu og hluti af því er þátttaka í Hönnunarmars.
ANNA THORUNN
Artic Plank
Geir Oddgeirsson / Studio Granda
Gudmundur Ludvik
GoForm
IHANNA HOME
Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir
Kormákur og Skjöldur – Íslenskt tweed
Pastelpaper
Þórunn Árnadóttir
Verið hjartanlega velkomin á HönnunarMars í Epal 2021.