• Forsíða
  • Dagskrá
  • Um HönnunarMars
  • English
Arkitektúr

Holmen svømmehall. Bygging ársins í Noregi 2017

Sýningastaður
Opnunartímar

      Verkefnið Holmen svømmehall verður kynnt.
      Þann 14. mars í fyrra var verkefnið valið bygging ársins í Noregi 2017 á Bygg dagene í Osló.
      Sýndar verða teikningar og módel af verkefninu frá kl. 10:30 en fyrirlestur verður haldinn um verkefnið kl. 14:00.

      Holmen svømmehall er sundhöll sem staðsett í Asker í Noregi og verkefnið unnið að íslenskum ráðgjöfum. Arkís arkitektar í samstarfi við Verkís verkfræðistofu hafa staðið saman að nokkrum verkefnum í Noregi. vinna við Holmen svømmehall hófst í ágúst 2013 og var verkefnið tekið í notkun í júní 2017. Mikill metnaður lá að baki verkefninu og staðsetningin einstök niður við ströndina í Asker með útsýni yfir Oslófjörðinn.
      Það má segja að einstaklega vel hafi tekist til að stilla saman væntingar og markmið allra sem að verkefninu komu sem skilaði sér í þeim árangri að Sundlaugin við ströndina í Asker var valin bygging ársins í Noregi 2017.
      Verkefnið er um 5300m2 að stærð og er byggt samkvæmt Passiv hus standard hvað orkuöflun og orkunýtingu varðar og var valið eitt af fyrirmyndarverkefnum Future Built í Noregi. Við sundlaugina eru 15 orkubrunnar sem nýta jarðvarma úr svæðinu auk þess sem 650m2 af sólarsellum er komið fyrir á húsinu.

      Að öðru leyti er vísað í ítargögn sem hengd eru með umsókninni.

      HönnunarMars er skipulagður af Hönnunarmiðstöð Íslands

      Hönnunarmiðstöð Íslands
      Aðalstræti 2,
      101 Reykjavík

      +354 771 2200
      www.honnunarmidstod.is
      info@honnunarmidstod.is