19–23.05.2021

DesignMarch

HönnunarMars

  • Heim
  • Um HönnunarMars
  • Covid-19
  • English
Fatahönnun, Arkitektúr

Design Diplomacy x Bandaríkin

Þú ert að skoða viðburð frá árinu 2019.

Michael Morris (BNA) kannar framtíð arkitektúrs fyrir dvöl fólks í geimnum og vinnur nú að því að þróa tækni til þess að þrívíddarprenta hýbýli úr tiltækum efnum á Mars. Karl Aspelund (IS) er hönnuður og mannfræðingur sem hefur tekið þátt í 100 ára geimflaugarverkefni og rannsakað þar fatnað og textíl fyrir löng geimferðalög og geimsamfélög.

Þriðja árið í röð bjóða sendiherrar hönnuðum frá sínum heimalöndum að taka þátt í opnu samtali við íslenska kollega á HönnunarMars. Sendiherrarnir opna dyrnar að heimilum sínum og veita gestum einstakt tækifæri til þess að hitta hönnuði og sækja sér innblástur.

Hugmyndin er í eigu Hönnunarvikunnar í Helsinki, þar sem sérsniðin spurningaspjöld eru notuð til þess að hefja hönnunarmiðaða umræðu og kryfja til mergjar innblástur, daglega rútínu og vinnuferli hönnuða.

VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ AÐGANGUR Á VIÐBURÐINN KREFST SKRÁNINGAR. SKRÁÐU ÞIG HÉR

HönnunarMars er skipulagður af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

+354 771 2200
www.honnunarmidstod.is
info@honnunarmidstod.is

Skráðu þig í skúbbklúbb HönnunarMars