„Það er ekki á hverjum degi sem maður fær heimboð að skála hjá sendiherra – og hvað þá að þar séu hönnuðir að spila spil. Allt í sama partýinu. En nú er tækifærið!”
Þriðja árið í röð bjóða erlendir sendiherrar hönnuðum frá sínum heimalöndum að taka þátt í opnu samtali við íslenska kollega á HönnunarMars. Sendiherrarnir opna dyrnar að heimilum sínum og veita gestum einstakt tækifæri til þess að hitta hönnuði og sækja sér innblástur.
Design Diplomacy viðburðir eru framleiddir í samstarfi við Helsinki Design Week sem á hugmyndina. Sérsniðin spurningaspjöld eru notuð til þess að hefja hönnunarmiðaða umræðu og kryfja til mergjar innblástur, daglega rútínu og vinnuferli hönnuða.
Sendiráð eftirfarandi ríkja taka þátt í Design Diplomacy 2019: